jógúrt

berlin 002

og þá að einhverju sem máli skiptir. þetta er besta jógúrt sem ég hef smakkað. já, hún er betri en íslensk jógurt. og hún er tyrknesk. fæst eingöngu í tyrkneskum kjörbúðum. afskaplega góð á bragðið.

ég hef verið kallaður ýmsum nöfnum af þeim sem hafa ekki í sér nennu að bera fram allt nafnið mitt. víxill er eitt dæmi. víkí. kingur. kingsi. frænka mín tók upp á því fyrir mörgum árum að kalla mig vígur. því kalli svara ég ekki nema af hennar munni. hún er með einkarétt.

vígur rímar við rígur. ég er miklu betri í hálsinum.

kafli 4 er kominn inn. og næsti þar á eftir, sá 5. það er að segja, kemur í síðasta lagi á mánudag.

góða helgi. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl

Gott að heyra að þér líður betur ...eigðu góða helgi og ég bíð spennt eftir næsta kafla!

Erla Ósk Arnardóttir Lilliendahl, 2.11.2007 kl. 11:24

2 identicon

Tyrkir kunna ýmislegt fyrir sér. Ætli það sé tyrkneska landnámskýrin sem gefur svona góða jógúrt? Held að jógúrt sé upprunin í kákasusfjöllunum og eplin jafnvel líka. Mæli með Iskender kebab, fór á staðinn í Tyrklandi þar sem sá réttur var fundinn upp og þar var maður í fullri vinnu við að hella bræddu smjöri á diska gestanna.

Örn Úlfar Sævarsson (IP-tala skráð) 2.11.2007 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband