25.9.2007 | 08:43
lasi
ég er lasinn. týpískt. ætlaði að kaupa mér stóra flösku af lýsi til að taka með mér út, en gleymdi því eins og svo mörgu öðru. veit ekki með útflutning á þessari eðalvöru. kannski ég finni hana í hillum hér.
ég vil nefnilega bara íslenskt lýsi. þannig er það nú bara. þjóðarrembingurinn nær þó ekki mikið lengra. ég til dæmis, verandi heima í íslandi, geng aldrei út úr verslun ef sá sem afgreiðir mig er ekki íslenskur.
óstjórnlega skemmtilegt að lesa um þess háttar hálfvitaskap á forsíðu fréttablaðsins í morgun. fyrsta skipti síðan ég kom út að ég kíkti á blaðið á netinu.
hef ákveðið að gefa íslenskum fjölmiðlum og fréttum frí um stundasakir.
Athugasemdir
Þú ert ekkert lasinn!!! Það eru bara kellingar sem verða lasnar. Þú ert karlmaður, og verður annaðhvort dauðvona eða latur
Íslensk lýsi fæst sennilega hvergi nokkurstaðar í heiminum nema á Íslandi. Það er vegna þess að það er svo ógeðslega vont að engum mundi detta til hugar að kaupa það. Nema íslenskum lötum karlmönnum
Sama með íslensk áfengi t.d brennivín ojjjj og ógleði.
Láttu þér lýða betur og fáðu þér bara Whisky. Það er miklu betra en lýsi.
Hlakka til að sjá þig kroppur. Risa koss frá mér.
Hulla (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 11:10
Vona að þú hafir gott í doíjtslandi. Verðurðu kominn með týpuklippingu og í leðurbuxur um jólin?
kveðjur úr nepjunni.
BjöHly.
ps. Þú ert aaalltaf veikur!
BjörnHlynur (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 12:11
Sæll Víkingur,
reyndi að hringja í þig eins og vitleysingur á föstudaginn í Berlín, ég var ekki búin að gleyma bjór deiti okkar. En þú varst með slökkt á síma og ég varð leið. En við drekkum þá bara bjór á Íslandi í vetur í staðinn. hafðu það ógeðslega gott í Berlin, enda annað ekki hægt bíst ég við.
kk,
Harpa
Harpa (IP-tala skráð) 25.9.2007 kl. 14:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.