23.5.2007 | 10:57
á döfinni
það styttist í næstu leikferð.
þriðjudaginn 29. maí, salamanca á spáni. pródökt: woyzeck.
um borgina veit ég ekkert, en myndirnar sem gúggull færir mér lofa sannarlega góðu. það sérstaka er að leikhópur, sviðsmenn með sviðsmynd og allt heila klabbið, þvælist alla þessa leið til að sýna einu sinni!
frá salamanca ætlum við nokkur úr hópnum að fara til barþelona. þangað hef ég aldrei komið en kunnugir segja að þar sé æði gaman.
það er nákvæmlega ekkert að þessu. ég er lukkunar pamfíll.
ég las í stjörnuspá fyrir mánuðinn að hrúturinn ætti að nota maí í að rannsaka og undirbúa sig fyrir komandi verkefni. það er einmitt það sem ég er að gera þessa dagana. fylla brunninn.
ótrúlega mögnuð þessi stjörnuspeki.
Athugasemdir
Barcelona er dásamleg borg. Njóttu hennar.
Næsti ringó 21. júní hjá Huldunni; léttmeti sumarsins: einhver bók eftir Snjólaugu Bragadóttur. Vonandi kemstu.
Álfa (IP-tala skráð) 23.5.2007 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.