Færsluflokkur: Bloggar

hann tómas minn

í kvöld sat ég með syni mínum og aðstoðaði hann við heljarinnar teiknimyndaverkefni um vesturfarana, sem hann hefur eytt drjúgum tíma í og ætlar að sýna bekknum í samfélagsfræði á morgun. vinur minn einn, sem sér ýmislegt sem aðrir sjá ekki, sagði eitt sinn við mig að þótt mitt listastúss væri vissulega merkilegt skyldi ég bara bíða og sjá son minn blómstra í framtíðinni. þar færi listamaður sem mun láta til sín taka.

að sjá tómas vinna við tölvuna og koma hugmyndum sínum á koppinn er algerlega stórkostlegt. hann er efnilegur svo ekki sé meira sagt...

... sagði faðirinn fullur af stolti, ýtti á "vista og birta", og lagðist glaður og þakklátur í neðri kojuna. róandi andardráttur efri kojunnar, þar sem strákurinn hans lá, ruggaði honum í svefn.


um valgerði

ólyginn sagði mér að valgerður sverrisdóttir sé lærður snyrtifræðingur. ólyginn sagði mér líka að hún tali ekki stakt orð í ensku.

nú hef ég nákvæmlega ekkert á móti snyrtifræðingum. ég velti því hins vegar fyrir mér hvort það sé besti grunnurinn fyrir stöðu utanríkisráðherra. ekkert verra heldur að búa yfir örlítilli enskukunnáttu þegar maður gegnir því embætti.

valgerður er án efa mjög fín manneskja. ég leyfi mér þó að hafa þá skoðun að hún sé ekki á réttum stað í lífinu. ætti að vera að gera eitthvað allt annað sem hentar henni og hún er flínk í. eins og til dæmis að snyrta fólk.

eða var ólyginn kannski bara að ljúga mig fullan? ég gleypti þetta kannski bara af því mér fannst þetta allt eins líklegt.

 


í fyrsta sinn

hjartanlega velkomin, hvaðan sem þið komið og hvert sem þið eruð að fara.

kleinurnar eru frá mömmu en kaffið hellti ég upp á sjálfur, enda eitt af fáu sem mér tekst að klúðra ekki.

það kann enginn við langar ræður í samkvæmi sem þessu, svo ég hef þetta bara stutt og laggott. 

megi ég sjá ykkur sem oftast hér og bara... takk fyrir.


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband